Ferill 758. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1849  —  758. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Bankasýslu ríkisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Bankasýsla ríkisins?
    Bankasýsla ríkisins starfar samkvæmt lögum nr. 88/2009, um Bankasýslu ríkisins, og lögum nr. 155/2012, um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, þar sem kveðið er á um hlutverk og verkefni stofnunarinnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Bankasýslu ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi Bankasýslu ríkisins fellur undir málaflokk 5.20 Eignaumsýsla ríkisins og samkvæmt fylgiriti með fjárlögum fyrir árið 2020 er fjárveiting til stofnunarinnar 60,8 millj. kr.